Ingredients

Sítrónusósa

6 msk olía

3 msk sítrónusafi

rifinn börkur af 1 sítrónu

4 msk steinselja

salt og nýmalaður pipar

500 g gott pasta

300 g spergilkál

1 kúrbítur

300 g grænar baunir frosnar

1 búnt vorlaukur sneiddur

3-4 hvítlauksgeirar, sneiddir

50 g furuhnetur

2 msk olía

2 hefnafylli klettakál

Preparation

Hrærið allt sem fer í sítrónusósuna saman og látið til hliðar. Sjóðið pasta í saltvatni í stórum potti. Bætið spergilkáli, kúrbít og baunum út í þegar helmingurinn af suðutímanum á pastanu er liðinn. Steikið vorlauk, hvítlau og furuhnetur í 2 msk af olíu á meðan grænmetið sýður. Setjið klettakál í botninn á stórii skál. Takið frá 1 bolla af pastavatninu, hellið pastanu í sigti og setjið það síðan ofan á klettakálið. Hellið sítrónusósunni, laukblöndunni og pastavatninu yfir og blandið vel saman. Smakkið til með sjávarsalti og nýmöluðum pipar. Berið fram með rifnum parmesenosti